26.12.2011 | 08:05
"Turismo inferior est la Fuerza de La Vida en El España" dicen les listo !
þett mun vera reynsla Spánverja í þeirra kreppu,sem er mikil af vöxtum hjá þeim sem okkur. OKKAR kreppa er þó verri vegna hnattstöðu Íslands, en margir þess fýsandi að flytja hana í huganum t.d. austur í NORÐURSJÓ eða Eystrasalt ?!? Sumir kjánar ætla, að hættum við Hvalveiðum, þá myndi ESB-Sólin skína á okkur "eymingjana" að eilífu ?
VIÐ skulum muna, þó að Spánverjar, vinir okkar, vilji ekki drepa hvali nú, þá drepa þeir grimmt flest, sem þeir komast í tæri við hjá öðrum þjóðum nota bene !
Menn búa yfir margþættu lunderni, t.d. þeir, sem vilja skoða hvali (góðu börnin hennar EVU) og vondu börnin hennar EVU vilja sjá Hvali skorna.Báðir hópar eiga, það sem okkur vantar sárlega, fé, fjármuni, já seðla "for satan"
Látum reyna á þetta of það mun vera ein af mörgum leiðum út úr kreppunni !
Með kveðju úr Fjallabyggð, KPG.
16.11.2011 | 09:00
Hvar er Don Kíjóte okkar Íslendinga ?
Ég hefi hvorki heyrt í honum né nokkurt annað lífsmark fundið frá vesalings karlinum í nokkrar vikur ? Eru þau Rósalinda hin íðilfagra um þessar mundir? Kannski eru þau á Spáni að hjálpa Rubalcala, en sá á í miklum vandræðum og rimmum við Rahoy nokkurn, sem er ágætis hægri maður. Mariano Rahoy er með eindæmun vinsæll, því að hann leikur á gítar og syngur með dágóðri rödd !! Sigri hann í komandi vali spænskra á nýjum forsætisráðherra, tel ég mig geta lofað áhorfendum TVE-Int.,TVE-La Una og fl.stöðva góðri kosninganótt.
Þetta var útúrdúr, enn er spurningunni ósvarað :¿ Donde están Don Kíjóte y su esposa? Það væri gaman að finna hann, það eru engin fundarlaun.!!
Kveðja frá Sigló, KPG.
7.11.2011 | 10:00
Gleði á Spáni ?
Mikil spenna ríkir þessa dagana á Spáni, enda verður kosið til spánska þjóðþingsins 20. nóv. n.k.TVE ("RUV")þeirra á gerir kosninga undirbúningi allra flokka góð skil, en í raun snýst dagskrá TVE (sem eru 3) tveggja stærstu flokkanna, PP og PSOE, en á Spáni eru um 40 flokkskríli, sem samtals fá innan við tug fulltrúa!
Þess má geta, að af þessum 7-8 þingmönnum fá Kanarí-Eyjar sameiginlega 3 fulltrúa (með uppbótarþing-manni) !
Kosningabaráttu fylgja oftast fjöldi auglýsinga bæði flokka og hagsmunahópa. Tveir hópar skáru sig úr í gærkvöldi, en það voru seljendur blíðutóla hvers konar í öllum regnbogans litum (+svartur) og stærðum, sem góðum graðhesti væri fullur sómi að ? Hinn hópurinn voru svo skækjurnar sjálfar, sem héldu fundi og fóru í kröfugöngur. Þær voru líka sem tólin skrautlegur hópur en þó skrautlegri, því að þær voru gamlar og reyndar og ungar og efnilegar ?!
Ég vil að lokum hvetja bloggvini mína sem og alla, sem geta (og mega) horfa á TVE-International eða á TVE La Una, því að kosningabaráttan í sjónvarpi er rétt nýbirjuð.
Með góðum kveðjum frá Fjallabyggð,KPG.
5.11.2011 | 08:01
Lýsing Reykjanesbrautar ?!
Nafni minn Pálsson skrifar ágæta grein um lýsingu Reykjanesbraut í Morgunblaðinu í dag. Við lestur greinar Kristjáns, vaknaði sú spurning í huga mér, " hvers vegna skrifar Kristján Pálsson, fyrrum einn af okkar bestu þingmönnum þessa grein"?
Við lestur greinarinnar fékk ég svar við spurningunni, en það er, að stjórnvöld þessa lands týma ekki lengur að lýsa Reykjanesbraut upp !
Slíkar og þvílíkar nánasir stjórna þessu Guðs volaða landi?
Við megum ekki gleyma, að Reykjanesbraut er braut allra landsmanna og gesta okkar líka!
Með góðri kveðju frá Siglufirði, KPG.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.9.2011 | 22:50
Kaup útlendinga á íslensku landi.
Svo nefnist góð grein eftir Þorstein Sæmundsson, stjörnufræðing í Morgunblaðinu í dag.Hann minnir þá á sem sofnað hafa á verðinum, að Kína sé einræðisríki. Innræti þeirra bara gagnvart norrænum þjóðum ætti að vera mönnum víti til varnaðar, Liu Xiaobo er enn þá í grjótinu.Kínversk yfirvöld eru reið Norðmönnum vegna ósvífninnar í sinn garð, er þeir veittu Liu friðarverðlaun Nóbels. Þá minnist Þorsteinn Sæmundsson á Falun Gong-málið.
Ekki má gleyma EES-samningnum, sem Jón Baldvin Hannibalsson hampaði sigri hrósandi í tíð Viðeyjar (II)-stjórnar hans og Davíðs Oddssonar. Vissulega bar Davíð Oddsson ábyrgð á þeim óheilla gjörningi (sem fsrh.) , en hann hafði undir sér afar baldinn utanríkisráðherra og það verður líta á sem heimilisvandamál Davíðs Oddssonar þá !?
Íslendingar hafa því miður löngum haft stjórnarherra, sem lotið hafa í duftið fyrir erlendu auðvaldi.Núverandi stjórn er ein sú ömurlegasta í sögu Lýðveldisins Ísland, hvað síðastnefnda atriði varðar.
Með kveðju frá Fjallabyggð, KPG
24.12.2010 | 09:30
Til Umhugsunar á Aðventunni .
Ágætu bloggvinir og aðrir, sem kynnu að lesa þennan greinarstúf. Morgunblaðið er og verður vonandi ætíð, það íslenskt blað, sem hæst rís í blaðaútgáfu á Íslandi. Ég fékk enn eina sönnun þess, er ég las grein eftir Sigurð Oddsson, verkfræðing, frænda minn (reyndar fjarskyldan). Greinin heitir "Siðleysi og hroki til umhugsunar á aðventunni". Þessi grein er að mínu mati dæmalaust vel skrifuð og að auki tímabær. Hafi Sigurður Oddsson þökk fyrir !
Sendi að lokum þeim sem lesið hafa og ekki síst þeim sem lesa munu grein Sigurðar Oddssonar bestu jóla og hátíðarkveðjur og óskir um farsælt komandi ár.
Vesturbær Fjallabyggðar, að morgni Aðfangadags Jóla, KPG.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.5.2010 | 08:35
Með lík í lestinni.
Það er óskiljanlegur hroki forráðamanna Sjálfstæðisflokksins að bjóða kjósendum sínum að mæta til leiks með lík glæpamanna í lestinni
. Það er engin afsökun, að slíkt hafi gerzt í öllum fjórflokkum
.
Bjarni Benediktsson verður að sýna manndóm og hreinsa almennilega til í flokknum, Ég bíð spenntur eftir næsta landsfundi
.
Með kveðju frá Siglufirði, KPG.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2010 | 13:25
Réttsýni forsætisráðherra !
" Sínum augum lítur hver á silfrið ", hljóðar gamall málsháttur. Mér datt hann í hug, er ég hafði hlýtt á viðtal blaðamann Mbl. við frú Jóhönnu. Hún sneri útúr fréttamanni og fór að tala um enn eldri syndir Sjálfstæðismanna
frá byrjun aldarinnar. Trúlega eru einhverjir Sjálfstæðismenn sama marki brenndir og Steiunn Valdís og auðvitað á ekki að hlífa þeim heldur
! Frú Jóhanna missti þarna af gullnu tækifæri til að taka af skarið og segjast mundu beita sér fyrir hreinsun í sínum flokki, en hún brást flokknum tveim dögum fyrir kosningar. Vesalings Dagur B. að vera undir slíkum formanni, úff
.
Með kveðju frá Fjallabyggð, KPG.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.7.2009 | 10:03
Hvað er framundan ? 7-9-13 ?

Landið brennur. Ríkisstjórnin verri en engin.Allt virðist á hraðri leið til Heljar.
Þó eru ljósir punktar í allri ringulreiðinni einnig, og er tilkoma nýrra svefnsökuþóra, sem aka Hringveginn af festu og öryggi hið merkasta mál
. Þarna mun á ferð nýjasta sprotafyrirtæki á vegum stjórnvalda. Hyggjast menn bara ráða opinbera bílstjóra, sem hafa svefnpróf upp á vasann
. Heyrst hefur, að æðstu ráðmenn með sjálfan Forsetann í broddi fylkingar
hyggist legjja reglulega í púkk í sprotasjóð sofandi ökunema.
Fjármálaráðherran ku hafa hugsað sér að gera sérsamninga við væntanlega svefnbílstjóra, þannig að ráðmenn útvegi ((afgangar frá Alfredó í SIV), en SIV er undirnefnd
Sölunefndar Varnarliðseigna, þar sem I-ið stendur fyrir illseljanlegur)
bedda eða LeisýboYja fyrir bílstjóra ráðherrabílanna, sem munu verða af gerðinni Nano De Luxe "Especiali" (nánar um þá síðar!) frá Indlandi. Kjör bæði bílstjóra og ýmissa óæðri pótintáta munu lækka nokkuð (ca.13 %), en hins vegar munu laun handvalinna aðstoðarmannna ráðherra og ráðuneytisstjóra hækka verulega (??%), sem fyrst
vegna aukinnar áhættu ? Sú áhætta mun vera til komin vegna TATA Nano bílsins, en ekki vegna bílstjóranna ? Skrýtið ? Kannski meira um bílana seinna !
Með kveðju frá Fjallabyggð, KPG.
|
Þyrla kölluð út vegna sinuelda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt 8.8.2009 kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2009 | 11:33
Réttlát Reiði ? Hvers ?
" Höfundur Staksteina" nær varla upp í nef sér af gremju og vandlætingu vega þess, að Þór Sari sagði í gærkveldi, að hann og tveimur félögum hans í þingflokki BORGARAHREYFINGARINNAR hefðu skipt um skoðun í ákveðnu máli
. Hvernig er með "STAKSTEINA " Mbl., sem ritstjórn hins ágæta blaðs, hefur oft þurft að sverja af sér vegna, hverskonar öfga og bulls, sem því miður dregur Morgunblaðið ómaklega niður á lægra plan. Er það virkilega svo, að þingmenn þurfi að fá leyfi "STAKSTEINA" Mbl. til að skipta um skoðun?
. Það var til forna, að menn handsöluðu ýmissa gjörninga
,slíkt þótti til fyrirmyndar, samt héldu slíkir dílar ekki ávallt, er á hólminn var komið ? Handsöl geta verið bæði góð og þörf, en það er ekki sama við
hvern og hvenær Þau eru gerð ! Hugsanlegt er, að hinir vökulu þingmenn Borgarahreyfingarinnar,

, sem eru þrír hafi gert sér grein fyrir því, að heill lands og þjóðar væri í veði ? Þráinn Bertilsson hefur verið utangátta
allan þann tíma, sem hann setið á þingi
og tók afstöðu með væntanlegum landráðadelum
Fjórflokksins
.
Mér finnst BORGARAFLOKKURINN vera sá FLOKKUR, sem finnur til þeirrar ábygðar, sem hann var kosinn til. Mér finnst STSKSTEINAR Mbl. í dag vera MORGUNBLAÐINU til skammar.
Með kveðju frá Siglufirði (Vesturbæ Fjallagyggðar), KPG.
Það er hugsanle
|
Mikil óvissa um ESB |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



athb
baldher
fannarh
fullvalda
gattin
gudmundsson
heimssyn
herdis
iceberg
joiragnars
jonfinnbogason
jonvalurjensson
juliusbearsson
prakkarinn
sjalfstaedi
stebbifr
stinajohanns
sveiflan
veravakandi
zumann
ek
harhar33
gthg
tilveran-i-esb
einarvill
pallblondal
ingagm
annabjorghjartardottir
au
pelli
beggo3
h2o
eldlinan
westurfari
eggertg
okkarframtid
egill
eirag
sunna2
esbogalmannahagur
gutti
elnino
bofs
gmaria
gunnarw
hannesgi
maeglika
vulkan
hjorherb
astromix
kreppan
naflaskodun
johanneliasson
huxa
jonatlikristjansson
islandsfengur
jonmagnusson
bassinn
ksh
kij
kristinn-karl
kristinnp
lydurarnason
magnuss
odinnth
omargeirsson
pallvil
palmilord
hross
rlord
samstada-thjodar
seinars
logos
sigurfang
sjonsson
ziggi
sigurjonth
stjornuskodun
sveinnt
tryggvim
vala
viggojorgens
villagunn
postdoc
vga
thjodarheidur
kermit

